Teymisþjálfun
Í teymisþjálfun vinnur teymið saman að því að skoða hvernig samstarfið gengur í dag, hverju það vill ná fram og hvað þarf að breytast til að ná markmiðum teymisins. Við skoðum styrkleika teymisins, það sem stendur í vegi fyrir árangri og hvað þarf að gerast næst.
Hvenær getur teymisþjálfun gagnast?
Teymisþjálfun getur meðal annars hentað þegar teymi vill:
efla samstarf og samskipti
nýta betur styrkleika og fjölbreytni innan teymisins
styrkja sameiginlega stefnu og sýn
takast á við breytingar eða áskoranir
vinna með hlutverk, ábyrgð eða vinnulag innan teymisins
styrkja traust og taka samstarfið á næsta stig
ná betri árangri sem teymi
Hvernig fer teymisþjálfun fram?
Teymisþjálfunin er sniðin að hverju teymi og því sem það vill vinna með. Í upphafi skoðum við stöðuna, hverju teymið vill ná fram og hvað er mikilvægast að leggja áherslu á.
Á fundunum vinnur teymið síðan með þau atriði sem skipta mestu máli og ákveður hvaða breytingar það vill gera í daglegu starfi. Á milli funda fær teymið tækifæri til að prófa ný vinnubrögð og fylgja þeim eftir.
Eftir þörfum er hægt að flétta einstaklingsmarkþjálfun og NBI-greiningu inn í vinnuna. NBI varpar ljósi á ólíkar hughneigðir innan teymisins og hvernig þær geta birst í samskiptum, ákvarðanatöku og úrlausn verkefna.
Byrjum á samtali
Ef þú hefur áhuga á teymisþjálfun byrjum við á samtali um teymið, stöðuna í dag og hverju þið viljið ná fram. Út frá því getum við metið hvort teymisþjálfun henti og hvernig vinnan gæti litið út.
Fleiri leiðir til að vinna með mér