Þú finnur að eitthvað þarf að breytast
Ég hjálpa fólki að staldra við, átta sig betur á hvað það vill og taka næstu skref af meiri ró og öryggi.
Hvað heldur aftur af þér?
Ef þú kannast við eitthvað af þessu er það merki um að eitthvað þurfi að breytast:
Þú veist ekki lengur hvað skiptir þig máli eða hvað þú raunverulega vilt
Þú efast stöðugt um eigin getu, upplifir loddaralíðan (e. impostor syndrome), óttast mistök eða að valda fólki vonbrigðum
Þér finnst árangurinn láta bíða eftir sér, það hefur hægt á vexti þínum í starfi og þú fyllist gremju
Álagið er of mikið, jafnvægi milli starfs og einkalífs er úr skorðum og þú fórnar eigin vellíðan fyrir starfið
Þú nýtir ekki styrkleikana þína, finnur ekki ástríðuna og dafnar ekki í starfi
Þú stendur frammi fyrir stórum ákvörðunum eða breytingum sem eru yfirþyrmandi og þú nærð ekki að taka skrefið fram á við
Með markþjálfun getur þú:
fengið skýrari sýn á hvað þú vilt
sett þér markmið í samræmi við það sem skiptir þig raunverulega máli
endurskilgreint hvernig árangur lítur út í þínu lífi
sigrast á hugsunum sem halda aftur af þér
fundið styrkleikana þína og leiðir til að nýta þá
markað þína leið að þínum markmiðum
fundið hugrekkið til að gera það sem þarf til að ná þínum árangri
Ég ákvað að læra markþjálfun til að bæta í verkfærakistuna mína sem mannauðsstjóri. Í stuttu máli kolféll ég fyrir aðferðafræðinni og þeim mögnuðu breytingum hún getur skilað. Það sem hófst sem endurmenntun varð að nýrri faglegri braut fyrir mig.
Í dag starfa ég sem markþjálfi og mannauðsráðgjafi. Ég er með ACC vottun í markþjálfun frá International Coaching Federation (ICF) og með framhaldsmenntun í markþjálfun frá Profectus. Ég hef einnig meistaragráðu í mannauðsstjórnun og margra ára starfsreynslu í mannauðsmálum á fjölbreyttum vinnustöðum þar sem ég hef aðstoðað stjórnendur og annað samstarfsfólk við að ná framúrskarandi árangri og betra jafnvægi í störfum sínum.
Það sem gleður mig mest í þessari vinnu er að sjá fólk fara úr óvissu yfir í skýrleika og taka skref sem það treysti sér ekki til áður.
Svona vinn ég
Mörg þeirra sem leita til mín eru vön að hugsa mikið, bera mikla ábyrgð og halda bara áfram, jafnvel þegar eitthvað er farið að toga í aðra átt.
Í markþjálfun gefst tækifæri til að staldra við, ræða hlutina upphátt og skoða hvað er raunverulega í gangi án þess að þurfa að hafa öll svörin strax.
Ég spyr spurninga … þú talar. Mitt hlutverk er ekki að segja þér hvað þú átt að gera, heldur að leiða samtalið áfram og skapa rými fyrir þig til að heyra betur í þér.
Tímarnir enda oft á því að þú sérð hlutina í öðru ljósi eða ákveður næstu skref sem henta þér og þínu lífi.
Fékk mig til að hugsa lengra
★★★★★
„Ragnheiður er afslöppuð, hvetjandi og uppörvandi og spurði spurninga sem fengu mig til að hugsa lengra.“
Ég fékk gríðarlega mikið út úr þremur tímum
★★★★★
„Ég fékk gríðarlega mikið út úr þeim þremur tímum sem ég tók, ásamt NBI greiningu til þess að átta mig á hvað ég vildi auka í mínu starfi og hvað ég vildi minnka við til þess að blómstra betur í mínum styrkleikum.“
Mögnuð, gagnleg og skilvirk aðferð
★★★★★
„Mögnuð, gagnleg og skilvirk leið til þess að taka stöðutékk og móta mína vegferð eftir styrkleikum og stefnu.“
Umsagnir frá markþegum
Betri og öðruvísi árangur
★★★★★
„Það kom mér skemmtilega á óvart hvað markþjálfun hjá Ragnheiði hefur hjálpað mér að ná betri og öðruvísi árangri í mínum persónulega vexti og móta skýrari stefnu í lífinu.“
Ég hef kynnst sjálfri mér betur
★★★★★
„Ég hef kynnst sjálfri mér betur, sett mér öðruvísi og skýrari framtíðarsýn og fundið nýjar leiðir hvernig ég get eflt mína styrkleika til að ná þangað.“
Ný tækifæri og lausnir
★★★★★
„Í samtölum mínum við Ragnheiði hefur hún hjálpað mér að horfa inn á við, setja fókus á ný tækifæri og lausnir sem í raun bjuggu innra með mér en ég áttaði mig ekki á fyrr en í umræðunni við hana
Bókaðu ókeypis kynningarsímtal
Í símtalinu ræðum við stöðuna þína og hverju þú vonast til að breyta. Ég útskýri hvernig ég vinn og hvernig markþjálfun gengur fyrir sig svo þú fáir betri tilfinningu fyrir því hvort þetta sé rétta skrefið fyrir þig.
Tilbúin/n að byrja strax?
Þú getur bókað tíma hér.
Gott að vita
Lengd og fyrirkomulag
Hver tími er 50 mínútur. Við byrjum á því að koma okkur saman um hverju við ætlum að vinna að og höldum áfram þaðan. að við ætlum að vinna að — og þaðan förum við.
Í eigin persónu eða á fjarfundi
Tímarnir fara fram hjá mér í Skeifunni 19 eða í fjarfundi eftir því hvort hentar þér betur.
Fjöldi skipta
Fjöldi skipta fer eftir hverjum og einum. Margir byrja með þrjá tíma og sjá hvernig það þróast, aðrir halda lengur áfram.