Mannauðsráðgjöf

Faglegur og sveigjanlegur stuðningur í mannauðsmálum, sniðinn að þörfum hvers vinnustaðar.

Mannauðsráðgjöf hentar vinnustöðum sem vilja styrkja mannauðsmál til lengri eða skemmri tíma.
Þjónustan hentar vinnustöðum án mannauðssérfræðings og þeim sem þurfa stuðning við núverandi starfsemi vegna umfangs eða breytinga.

Dæmi um verkefni

  • Uppbygging, endurskoðun og þróun mannauðsmála

  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur í mannauðsmálum

  • Mótun og endurskoðun ferla og verklags

  • Breytingastjórnun og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk í breytingum

  • Greining á stöðu mannauðsmála og tillögur að úrbótum

  • Mannauðsstjóri að láni – tímabundinn eða reglulegur stuðningur eftir þörfum

Hvernig fer samstarfið fram?

Í upphafi förum við yfir stöðuna, forgangsmál og þau verkefni sem liggja fyrir. Út frá því skilgreinum við hvað þarf að gera og hvernig stuðningur hentar best.

Samstarfið getur falist í afmörkuðu verkefni, ráðgjöf og stuðningi yfir ákveðið tímabil eða reglulegri aðkomu að mannauðsmálum, til dæmis sem mannauðsstjóri að láni.

Áhersla er lögð á hagnýtar lausnir og að koma þeim í framkvæmd þannig að þær nýtist í daglegu starfi.

Byrjum á samtali

Ef þú hefur áhuga á mannauðsráðgjöf byrjum við á samtali um stöðuna, hvað þið þurfið að vinna með og hvers konar stuðningur gæti hentað. Út frá því getum við metið næstu skref og hvernig samstarf gæti litið út.

Fleiri leiðir til að vinna með mér