Leiðtoga­færni

Sérsniðin þjálfun fyrir stjórnendateymi sem vilja efla leiðtogafærni, styrkja samstarf og gera nýja þekkingu að hluta af daglegri stjórnun.

Ég vinn með stjórnendateymum sem vilja þróast saman og styrkja leiðtogafærni sína í daglegu starfi. Markmiðið er ekki bara að læra eitthvað nýtt heldur að gera breytingar sem verða hluti af daglegri stjórnun.

Hvað er Leiðtogafærni?

Leiðtogafærni er sérsniðin leið til að þróa stjórnendateymi yfir lengri tíma.

Samstarfið er sniðið að markmiðum, aðstæðum og áskorunum hvers vinnustaðar. Í upphafi metum við stöðuna og stjórnendateymið skilgreinir sameiginlegt markmið sem verður leiðarljós samstarfsins.

Þaðan tekur við regluleg sameiginleg vinna stjórnendateymisins þar sem unnið er með þau viðfangsefni sem skipta mestu máli hverju sinni. Á milli sameiginlegu fundanna fær hver stjórnandi stjórnendaþjálfun (einstaklingsmarkþjálfun) sem styður bæði við sameiginleg markmið teymisins og persónuleg markmið viðkomandi stjórnanda.

Mikilvægasti hluti vinnunnar fer þó fram á milli funda. Þar prófa stjórnendur nýja leiðtogafærni í eigin starfi, ígrunda reynsluna og vinna markvisst með það sem gengur vel og það sem reynist erfitt. Þannig verða ný vinnubrögð smám saman hluti af því hvernig stjórnendateymið leiðir, tekur ákvarðanir og vinnur saman.

Góð stjórnun mótast í daglegu starfi

Stjórnendur hafa mikil áhrif á það hvernig fólk vinnur saman, hvernig ákvarðanir eru teknar og hvernig brugðist er við álagi, breytingum og óvissu.

Vinnustaðamenning mótast ekki af gildum á vegg eða stefnumótunarskjölum. Hún mótast af því hvernig stjórnendur eiga í samskiptum, taka ákvarðanir og bregðast við þegar reynir á.

Flestir stjórnendur vita í raun hvað einkennir góða stjórnun. Áskorunin er sjaldnast skortur á þekkingu. Það er munur á því að vita hvað á að gera og að gera það í raun þegar álagið eykst, tíminn er knappur eða aðstæður verða flóknar.

Þess vegna þarf tíma, æfingu og eftirfylgni. Stjórnendur þurfa tækifæri til að prófa nýja nálgun í eigin starfi, ígrunda reynsluna og læra af henni – bæði sem teymi og sem einstaklingar.

Þegar stjórnendateymi vinnur markvisst saman yfir lengri tíma verður auðveldara að skapa skýra stefnu, byggja upp traust og þróa vinnubrögð sem festast í sessi. Þróun stjórnendateymisins er því ekki bara fjárfesting í stjórnendunum sjálfum heldur í vinnustaðnum í heild.

Hvenær skiptir þróun stjórnendateymisins mestu máli?

Ástæður þess að stjórnendateymi leita eftir stuðningi eru mismunandi. Hér eru nokkur dæmi um aðstæður þar sem markviss vinna með stjórnendateymið getur skipt máli.

Hvort sem um er að ræða hraðan vöxt, endurskipulagningu, sameiningu eða nýja stefnu kalla breytingar oft á markvissari stjórnun og samstilltara stjórnendateymi.

Breytingar

Nýtt stjórnendateymi

Þegar nýr hópur tekur til starfa skiptir máli að byggja upp traust, sameiginlega sýn og góð vinnubrögð frá upphafi.

Breytt eða ný hlutverk

Ný ábyrgð og breytt hlutverk kalla oft á nýja leiðtogafærni og stuðning við að vaxa í hlutverkinu.

Sterkara samstarf

Markmiðið getur verið að bæta samstarf, samræma stjórnun og skapa sameiginlega menningu.

Þróun leiðtoga

Góðir leiðtogar þurfa stuðning og svigrúm til að þróast. Það er alltaf rými til frekari vaxtar.

Hvernig vinn ég með stjórnendateymum?

Engin tvö stjórnendateymi eru eins. Þess vegna er umfang, áhersla og tímalengd alltaf aðlöguð að stöðu vinnustaðarins, markmiðum hans og þörfum þátttakenda. Vinnan byggir þó á ákveðnum grunni þar sem staðan er meting í upphafi og við lok verkefnis. Þjálfun og þróun stjórnendateymisins sem heildar í bland við einstaklingsmiðaða markþjálfun styður svo við raunverulegar umbætur og árangur.

Dæmi um viðfangsefni

Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi um viðfangsefni sem geta verið áhersluatriði í samstarfinu.

Hver vegna ber þessi aðferð árangur?

Þróun yfir tíma

Það tekur tíma að breyta venjum. Þess vegna fá stjórnendur tækifæri til að prófa nýja nálgun, fá stuðning og byggja smám saman upp ný vinnubrögð.

Stjórnendateymið þróast saman

Þegar allt stjórnendateymið tekur þátt verður auðveldara að skapa sameiginlega nálgun og styðja hvert annað í breytingunum.

Persónulegur stuðningur

Hver stjórnandi fær tækifæri til að vinna með eigin markmið, áskoranir og það sem skiptir hann mestu máli.

Raunverulegar aðstæður

Vinnan byggir á raunverulegum verkefnum og aðstæðum úr starfinu. Nýjar hugmyndir eru ekki bara ræddar, þær eru prófaðar í framkvæmd á meðan á samstarfinuð stendur.

Þegar ný vinnubrögð festast í sessi

Markmiðin eru mismunandi eftir vinnustöðum. Þegar stjórnendateymi þróast saman má þó oft sjá breytingar eins og þessar.

Stjórnendur vinna betur saman og styðja hver annan í daglegum verkefnum.

Samskipti verða skýrari og erfið samtöl eiga sér stað fyrr.

Starfsfólk fær skýrari ábyrgð, meiri stuðning og meira svigrúm til að taka frumkvæði.

Meira samræmi verður í stjórnun þvert á vinnustaðinn.

Breytingum er stýrt af meira öryggi og með skýrari sameiginlegri sýn.

Menningin styrkist í daglegum samskiptum og ákvörðunum.

Stjórnun verður markvissari og styður betur við markmið vinnustaðarins.

Ég hef starfað með stjórnendum í fjölda ára, bæði sem mannauðsstjóri og markþjálfi. Sú reynsla hefur kennt mér að góð stjórnun snýst ekki aðeins um þekkingu heldur líka um að skapa aðstæður þar sem stjórnendur geta nýtt hæfni sína, unnið vel saman og byggt upp vinnustaðamenningu sem styður bæði fólk og árangur.

Í dag vinn ég með stjórnendateymum að því að efla leiðtogafærni, styrkja samstarf og hjálpa stjórnendum að gera nýja þekkingu að hluta af daglegri stjórnun. Ég sameina þar reynslu mína úr mannauðsmálum og markþjálfun.

Ég er ACC vottaður markþjálfi frá International Coaching Federation (ICF), með meistaragráðu í mannauðsstjórnun og fjölbreytta reynslu af stjórnendaþróun, mannauðsstarfi og skipulagsbreytingum.

Gæti þetta hentað stjórnendateyminu ykkar?

Öll stjórnendateymi eru ólík. Þess vegna byrjum við á samtali um stöðuna hjá ykkur og hvað þið viljið styrkja.

Fundurinn er án skuldbindinga og engin þörf á að vera komin með fullmótaða hugmynd um verkefnið.

Við ræðum hvort þessi nálgun henti og hvernig mögulegt samstarf gæti litið út.