Fyrirlestrar, vinnustofur og námskeið
Fyrirlestrar, vinnustofur og námskeið sem styðja við forystu, samskipti og samstarf á vinnustöðum.
Efnið er hagnýtt, aðgengilegt og miðar að því að styrkja daglegt starf og samstarf.
Fyrirlestrar, vinnustofur og námskeið geta verið sjálfstæðir viðburðir eða hluti af stærra verkefni innan vinnustaðarins. Efni og fyrirkomulag er sniðið að hópnum, aðstæðum og því sem vinnustaðurinn vill leggja áherslu á. Áhersla er lögð á að tengja efnið við raunverulegar aðstæður, áskoranir og markmið vinnustaðarins.
Efni og áherslur
Forysta og áhrif leiðtoga
Erfið samtöl og endurgjöf
Breytingar og breytingastjórnun
Tilfinningagreind í starfi og stjórnun
Traust, samskipti og samstarf
Seigla og sjálfbærni í starfi
Starfsmótun og starfsánægja
NBI og heildarhugsun í teymum
Byrjum á samtali
Ef þú hefur áhuga á fyrirlestri, vinnustofu eða námskeiði byrjum við á samtali um hópinn, tilefnið og hvað þið viljið fá út úr fræðslunni. Út frá því getum við fundið efni og fyrirkomulag sem hentar.
Fleiri leiðir til að vinna með mér