Af hverju heitir fyrirtækið mitt Lóa markþjálfun?

„Af hverju heitir fyrirtækið þitt Lóa markþjálfun þegar þú heitir Ragnheiður?“

Ég fæ þessa spurningu stundum. Sannleikurinn er sá að mér fannst ótrúlega erfitt að finna nafn á markþjálfunarreksturinn minn. Ég velti því auðvitað fyrir mér að nota bara mitt eigið nafn en Ragnheiður er ekki beinlínis það þægilegasta í netheimum.

Ég held að ég hafi verið komin með vel yfir hundrað hugmyndir. En nafnið Lóa var lengi á listanum mínum.

Sagan af því nafni byrjar þegar ég starfaði sem mannauðsstjóri hjá Vatnajökulsþjóðgarði. Þar héldum við vinnustofu um samskipti þar sem við notuðum persónuleikapróf sem skiptir fólki í fjóra fugla eftir samskiptastíl og ákveðnum persónueinkennum; uglu, fálka, páfugl eða dúfu.

Þar sem við unnum öll með íslenska náttúru fannst okkur skemmtilegra að nota íslenska fugla. Páfuglinn varð því lundi og dúfan varð lóa. Ég var lóa samkvæmt prófinu.

Nokkru síðar hóf ég nám í markþjálfun. Það varð upphafið að mikilli sjálfsvinnu. Ég fór að skoða gildin mín og það sem skiptir mig raunverulega máli. Á svipuðum tíma lenti ég í kulnun og þurfti að fara í veikindaleyfi. Það reyndist líka risastór vendipunktur í mínu lífi.

Stóri lærdómurinn þar var að ef ég ætlaði ekki að lenda aftur á sama stað þyrfti ég að hætta að reyna að passa inn í væntingar annarra og muna betur hver ég er og hvað ég stend fyrir. Og ég var lóa.

Þannig fylgdi lóan mér áfram og kom upp þegar ég var að velja nafn á fyrirtækið mitt. Lóan minnir mig á að ég þarf ekki að vera nein önnur en sú sem ég er. Ég er hvorki of né van. Það hefur verðmæti að vera nákvæmlega sú manneskja sem ég er.

Lóa minnir mig á að vera ég sjálf. Sama hvað.
Þótt ég heiti ekki Lóa, þá er ég lóa. Þess vegna valdi ég það nafn.

Ragnheidur Bjorgvinsdottir

Ég er sjálfstætt starfandi markþjálfi og mannauðsráðgjafi og hjálpa einstaklingum, stjórnendum og teymum að finna skýra sýn, efla samskipti og taka skref í átt að því sem skiptir þau máli.

Markþjálfun átti upphaflega að vera eitt verkfæri í viðbót í verkfærakistunni minni sem mannauðsstjóri. En þegar ég sá hvaða áhrif hún getur haft á fólk varð hún að miklu meira en það.

Ég er ACC vottaður markþjálfi með meistaragráðu í mannauðsstjórnun og áralanga reynslu af mannauðsmálum. Það sem gleður mig mest í þessari vinnu er að sjá fólk fara úr óvissu yfir í skýrleika og taka skref sem það treysti sér ekki til áður.

https://www.loacoaching.is/
Next
Next

Við skiptumst á upplýsingum en eigum færri raunveruleg samtöl