Leiðtogamenning

Öflugt leiðtogateymi verður ekki til á einu námskeiði eða vinnustofu.
Ég vinn með stjórnendateymum
sem vilja þróast saman og styrkja leiðtogafærni sína í daglegu starfi.

Markmiðið er ekki bara að læra eitthvað nýtt heldur að gera breytingar sem verða hluti af daglegri stjórnun.

Á kynningarfundinum ræðum við stöðuna hjá ykkur og hvaða nálgun gæti hentað stjórnendateyminu.

Leiðtogamenning verður til í daglegri hegðun

Stjórnendur hafa mikil áhrif á það hvernig fólk vinnur saman, hvernig ákvarðanir eru teknar og hvernig brugðist er við álagi, breytingum og óvissu.

Vinnustaðamenning mótast ekki af gildum á vegg eða stefnumótunarskjölum. Hún mótast að því hvernig leiðtogarnir á vinnustaðnum eiga í samskiptum, taka ákvarðanir og bregðast við þegar reynir á.

Þegar stjórnendateymi vinnur vel saman verður auðveldara að skapa skýra stefnu, byggja upp traust og styðja starfsfólk í gegnum þær áskoranir sem fylgja daglegum rekstri og breytingum.

Þess vegna er þróun stjórnendateymisins ekki bara fjárfesting í einstaklingunum sem sitja í teyminu. Hún hefur áhrif á allan vinnustaðinn.

Leiðtogamenning breytist ekki með því einu að læra meira.
Hún breytist þegar stjórnendur æfa nýja hegðun, nýta hana í raunverulegum aðstæðum og endurtaka hana þar til hún verður eðlilegur hluti af því hvernig þeir leiða.

Flestir stjórnendur vita að það skiptir máli að hlusta, gefa gagnlega endurgjöf, fela öðrum ábyrgð, eiga erfið samtöl og byggja upp traust.

Það er þó mikill munur á því að vita hvað á að gera og að geta gert það þegar álagið eykst, tíminn er knappur eða aðstæður verða flóknar.

Þess vegna er þessi vinna hugsuð sem þróunarferli yfir lengri tíma, ekki stakt námskeið.

Það þarf ekki að vera eitthvað „bilað“ til að ástæða sé til að fjárfesta í þróun stjórnenda. Stundum er markmiðið að bregðast við áskorunum. Í öðrum tilvikum er ætlunin að styrkja það sem þegar virkar og undirbúa stjórnendateymið fyrir næsta kafla.

Hvenær getur markviss þróun stjórnendateymisins skipt mestu máli?

Punktur 1 trallalei lei lei

Punktur 2……………

Punktur 3 ………………….

Punktur 4 ………………….

Engin tvö stjórnendateymi eru eins. Þess vegna er umfang, áhersla og tímalengd alltaf aðlöguð að stöðu fyrirtækisins, markmiðum þess og þörfum þátttakenda.

Vinnan byggir þó á ákveðnum grunni sem styður við raunverulega og varanlega þróun.

þennan texta og allt þetta section þarf að þróa og laga …

Skref 1: Staða og markmið

vantar fyrirsögn

Skref 2: Sameiginleg teymisþjálfun

Stjórnendateymið vinnur saman að þeim þáttum sem skipta mestu máli.

Tímarnir geta innihaldið fræðslu, markþjálfun, æfingar, samtöl og vinnu með raunverulegar aðstæður úr starfseminni.

Skref 3: Einstaklingsmarkþjálfun

Hver stjórnandi fær stuðning við eigin þróun, áskoranir og markmið.

Þar er hægt að vinna dýpra með það sem einstaklingurinn þarf til að nýta sameiginlega vinnu hópsins í sínu eigin hlutverki.

Skref 4: Æfing í daglegu starfi

Milli tíma prófa stjórnendur nýja nálgun í raunverulegum aðstæðum.

Þeir fá tækifæri til að ígrunda hvað virkar, hvað reynist erfitt og hvað þarf að aðlaga.

Áherslurnar ráðast af því sem stjórnendateymið þarf

Meira en fræðsla um góða stjórnun

Þróun yfir tíma

Vinnan fer fram yfir nægilega langan tíma til að þátttakendur geti prófað ný vinnubrögð, fengið stuðning og unnið áfram með raunverulegar aðstæður.

Stjórnendateymið þróast saman

Stjórnendur byggja upp sameiginlegt tungumál og sameiginlegan skilning á því hvernig þeir vilja leiða.

Þannig verður þróunin ekki bundin við einn einstakling heldur getur hún haft áhrif á stjórnun og menningu fyrirtækisins í heild.

Hver einstaklingur fær persónulegan stuðning

Sameiginleg teymisvinna útilokar ekki einstaklingsmiðaða nálgun.

Einstaklingsmarkþjálfun gefur hverjum stjórnanda svigrúm til að vinna með sín eigin markmið, mynstur og áskoranir.

Lærdómurinn er tengdur daglegu starfi

Vinnan byggir ekki eingöngu á almennri fræðslu heldur þeim aðstæðum sem stjórnendur standa frammi fyrir.

Ný færni er æfð og nýtt í starfi á meðan á ferlinu stendur.

Markmiðið er breyting sem sést í daglegri stjórnun

Nákvæmur árangur ræðst af markmiðum hvers fyrirtækis. Vinnan getur meðal annars stuðlað að:

  • meiri sjálfsvitund og öryggi stjórnenda

  • sterkari samvinnu innan stjórnendateymisins

  • betri og markvissari samtölum

  • auknu trausti, ábyrgð og þátttöku

  • meiri samræmi í stjórnun þvert á fyrirtækið

  • betri getu stjórnenda til að leiða í gegnum breytingar

  • menningu þar sem fólk fær stuðning til að taka ábyrgð og vaxa

  • skýrari tengingu milli leiðtogastarfs, stefnu og daglegra ákvarðana

Leiðtogar þurfa líka stuðning til að geta staðið undir hlutverkinu

Í danskri rannsókn frá 2026, byggðri á svörum 723 stjórnenda í opinbera geiranum, kom fram að margir urðu stjórnendur vegna þess að þeir vildu hafa áhrif, setja stefnu og þróa fólk og starfsemi. Daglegt starf þeirra einkenndist hins vegar oft af rekstri, stjórnsýslu, tímapressu og slökkvistarfi.

55% höfðu á síðustu sex mánuðum íhugað að hætta í starfi.

Helstu ástæður tengdust meðal annars vinnuálagi, starfsskilyrðum, skorti á áhrifum og skorti á stuðningi.

Rannsóknin sýnir einnig að góð tengsl, samstarf og tilfinningin fyrir því að ná árangri með starfsfólkinu eru meðal mikilvægustu uppspretta starfsánægju stjórnenda.

Lokasetning

Að fjárfesta í stjórnendum snýst því ekki aðeins um frammistöðu þeirra. Það hefur einnig áhrif á líðan þeirra, starfsfólkið og getu fyrirtækisins til að ná árangri til lengri tíma.

Ég er ACC vottaður markþjálfi með framhaldsmenntun í markþjálfun frá Profectus. Ég hef einnig meistaragráðu í mannauðsstjórnun og margra ára starfsreynslu í mannauðsmálum á fjölbreyttum vinnustöðum þar sem ég hef aðstoðað stjórnendur og annað samstarfsfólk við að ná framúrskarandi árangri og betra jafnvægi í störfum sínum.

Ég hef mikla reynslu og ástríðu fyrir því að hjálpa einstaklingum að dafna og hámarka velgengni. Mitt markmið sem markþjálfi er að hjálpa þér að fá skýra sýn á hvað þú vilt, finna tilgang og ánægju bæði persónulega og í starfi.

Hvað þarf stjórnendateymið þitt til að taka næsta skref?

Texti

Á kynningarfundi förum við yfir stöðuna, markmiðin og hvaða nálgun gæti hentað.

Fundurinn skuldbindur þig ekki til neins og þú þarft ekki að vera komin/n með fullmótaða hugmynd um umfang eða innihald.

Við ræðum hvort þessi nálgun henti og hvernig mögulegt samstarf gæti litið út.