Námskeið

Námskeiðin eru fyrir fólk sem vill átta sig betur á hvað skiptir það máli og efla færni sem nýtist í lífi og starfi. Áherslan er á að það sem þú lærir nýtist í þínum aðstæðum, hvort sem þú ert að taka ákvörðun, breyta venju eða styrkja þig í starfi.

Á réttri hillu

Þú finnur að eitthvað þarf að breytast í vinnunni. En hvað? Á réttri hillu er námskeið þar sem þú skoðar hvað skiptir þig máli í starfi, hvar styrkleikar þínir nýtast og hvað þú getur haft áhrif á. Þannig sérðu betur hvar þú hefur svigrúm til að móta starfið þitt og hvað þú getur prófað til að auka ánægju þína í vinnunni.

Sjá nánar →

Markþjálfun í mannauðsmálum

Lærðu grunnatriði markþjálfunar og hvernig þú getur beitt henni í daglegum verkefnum til að efla samskipti, auka stuðning, skerpa á ákvarðanatöku og byggja undir eigin leiðtogafærni.

Námskeiðið er kennt í samstarfi við Lellu Erludóttur.

Sjá nánar →

Skapaðu þitt besta ár

Það er eitt að setja sér markmið og annað að gefa því pláss í dagsins önn. Á þessu vefnámskeiði skoðar þú hvers vegna markmiðið skiptir þig máli og gerir áætlun sem tekur mið af því hvernig dagarnir þínir líta út. Þú færð líka aðferðir til að halda í hvatninguna og taka upp þráðinn þegar áætlunin fer úr skorðum. Námskeiðið inniheldur fimm myndbönd og vinnubók. Þú horfir á myndböndin og vinnur verkefnin þegar þér hentar.

Sjá nánar →

Heilbrigð mörk í starfi

Á námskeiðinu lærir þú að greina eigin mörk og tjá þau af festu og virðingu. Þú skoðar við hvaða aðstæður reynir helst á mörkin í vinnunni, hvernig þú bregst við og hvað getur gert þér erfitt fyrir að setja þau.
Námskeiðið er kennt í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands.

16. febrúar 2027 · Endurmenntun HÍ
Sjá nánar →

Hafðu samband