Markþjálfun
Markþjálfun er samtal í trúnaði um það sem þú vilt þróa eða breyta í lífi þínu eða starfi. Kannski ertu að velta fyrir þér næsta skrefi í starfi eða vilt verða öruggari í nýju hlutverki. Ég hlusta og spyr spurninga sem hjálpa þér að sjá hvað þú hefur þegar fram að færa, koma auga á fleiri möguleika og velja leið sem hentar þér.
Í 15 mínútna kynningarsímtali fáum við að heyra aðeins hvort í öðru, ræðum hvað það er sem þú vilt vinna með og hvort markþjálfun hjá mér gæti hentað þér.
Einstaklingsmarkþjálfun
Þú gætir verið að velta fyrir þér hvort þú viljir halda áfram í sama starfi eða prófa eitthvað nýtt. Kannski viltu geta sett skýrari mörk í vinnunni svo þú eigir meiri orku eftir þegar heim er komið. Við tökum fyrir það sem helst liggur á þér og skoðum hvaða skref þú getur tekið í þínum aðstæðum.
Skoða einstaklingsmarkþjálfun →
Stjórnendamarkþjálfun
Í amstri dagsins gefst sjaldan tími til að staldra við og hugsa um hvernig þú vilt sinna stjórnendahlutverkinu. Í markþjálfun tökum við okkur þann tíma. Við skoðum aðstæður úr starfinu og hvað þú vilt styrkja í því hvernig þú leiðir, tekur ákvarðanir og vinnur með teyminu þínu.
Skoða stjórnendamarkþjálfun →
Svona fer markþjálfun fram
Við byrjum á að finna út hvað þú vilt fá út úr tímanum. Stundum liggur það strax fyrir. Stundum gefum við okkur góðan tíma til að átta okkur á því hvað skiptir mestu máli og hvert þú vilt að samtalið leiði.
Svo skoðum við viðfangsefnið saman. Ég hlusta og spyr út í það sem kemur fram. Við gætum til dæmis skoðað hvaða möguleika þú sérð, hvað þú veist nú þegar og hvað þú þarft að vita til að taka ákvörðun. Við gefum líka gaum að því hvernig þér líður með ólíka kosti og hvað þig langar að stefna að.
Undir lok tímans ræðum við hvað þú sérð skýrar núna og hvað þú vilt taka með þér úr samtalinu. Kannski hefurðu tekið ákvörðun. Kannski ertu komin með hugmynd að einhverju sem þú vilt prófa eða kanna betur.
Ég ákvað að læra markþjálfun til að bæta í verkfærakistuna mína sem mannauðsstjóri. Í stuttu máli kolféll ég fyrir aðferðafræðinni og þeim mögnuðu breytingum hún getur skilað. Það sem hófst sem endurmenntun varð að nýrri faglegri braut fyrir mig.
Í dag starfa ég sem markþjálfi og mannauðsráðgjafi. Ég er með ACC vottun í markþjálfun frá International Coaching Federation (ICF) og með framhaldsmenntun í markþjálfun frá Profectus. Ég hef einnig meistaragráðu í mannauðsstjórnun og margra ára starfsreynslu í mannauðsmálum á fjölbreyttum vinnustöðum þar sem ég hef aðstoðað stjórnendur og annað samstarfsfólk við að ná framúrskarandi árangri og betra jafnvægi í störfum sínum.
Það sem gleður mig mest í þessari vinnu er að sjá fólk fara úr óvissu yfir í skýrleika og taka skref sem það treysti sér ekki til áður.