Með hvaða krafti leiðir þú?

Ólíkar leiðir til að leiða, hafa áhrif og vinna með öðrum. Hér geturðu lesið meira um þína niðurstöðu.

Leiðtogakrafturinn þinn er

Eldur

SKÝRLEIKI · ÁKVEÐNI · FRAMKVÆMD

Þegar krafturinn nýtist vel

Þú getur skapað skýra stefnu, tekið af skarið og hjálpað öðrum að komast frá hugmynd yfir í framkvæmd.

Það sem er gott að hafa í huga

Hraðinn sem kemur þér áfram getur stundum skilið aðra eftir. Gefðu rými fyrir spurningar, ólík sjónarmið og þann tíma sem aðrir þurfa til að leggja sitt af mörkum.

Spurning til ígrundunar

Hvenær hjálpar ákveðnin þín öðrum áfram og hvenær væri gagnlegt að staldra við og hlusta?

Hvernig vilt þú nýta þinn kraft?

Í markþjálfun færðu rými til að skoða þinn leiðtogastíl og hvernig þú vilt beita honum í daglegu starfi.